PARKA FRÉTTIR

Hvorki opnað á Uber né Lyft – ESA áminnir Ísland

by | Jan 5, 2022

Mikilvægt að leigubílstjórar séu meðvitaðir um rétt sinn

Morgunblaðið birti viðtal við Ívar Frey Sturluson, sölustjóra Parka vegna þeirrar stöðu að frumvarp sem heimila átti þjónustu á borð við Uber og Lyft hefur enn ekki litið dagsins ljós. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, áminnti því Ísland og gaf því tvo mánuði til þess að grípa til aðgerða í nóvember síðastliðnum. Málið verður endurflutt í janúar samkvæmt þingmálaskrá forstætisráðherra. Verði málið afgreitt í janúar gæti frjálsari leigubílamarkaður loksins verið í sjónmáli.

Parka hefur keyrt af stað með app sem svipar til erlendu leigubílarisanna og býður leigubílstjórum að starfa sem sjálfstæðum bílstjórum hjá fyrirtækinu. „Þeir geta allir sameinast undir góðu íslensku appi og sinnt þörfum notandans. Við erum að vinna fyrir bílstjórana, sem er kannski það sem stöðvarnar hafa ekki verið að gera undanfarið,“ segir Ívar. Bílstjórar geti til að mynda stjórnað ferðum sínum betur og aukið þannig tekjur sínar.


Þótt lög­in heim­ili ekki notk­un far­veitn­anna enn með skýr­um hætti bygg­ir Parka á úr­sk­urði Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins, frá nóv­em­ber 2020, þar sem kom­ist var að þeirri niður­stöðu að Hreyf­ill hafi sýnt af sér sam­keppn­is­hamlandi hátt­semi þegar fé­lagið meinaði bíl­stjór­um sín­um að skrá sig sem bíl­stjóra hjá app­inu Dri­vers sem nú er í eigu Parka lausna ehf. Parka býður nú not­end­um sem eru í fyrirtækjaþjónustu að bóka næsta lausa leigu­bíl með ein­föld­um hætti í gegn­um Parka-appið.

„Við höf­um farið af stað og búið til gott ís­lenskt app fyr­ir ís­lenska leigu­bíl­stjóra. Þeir væru meira varðir gagn­vart því ef frum­varpið verður þannig að það opn­ar á allt sam­an og uber gæti komið til lands­ins. Ef það er ís­lenskt app til staðar með flestalla leigu­bíl­stjóra þá á svona risa­fyr­ir­tæki eins og Uber eng­an séns.“

En fréttina má lesa í heild sinni hér:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/01/03/hvorki_opnad_a_uber_ne_lyft_esa_aminnir_island/