Bílastæðasjóður Reykjavíkur og Computer Vision ehf. hafa hafið tilraunaverkefni til greiningar á umferð borgarinnar og möguleikum á sjálfvirkri innheimtu bílastæðagjalda. Greiningin mun ganga útá að kanna hvernig myndavélar geti nýst við stýringu á flæði og við innheimtu bílastæðagjalda m.a. í bílastæðahúsum. Einnig verður kannað hvernig hugbúnaður og vélbúnaður nýtist við margskonar aðstæður eins og eftir legu gatna og bílastæða sem og veðurfari og birtuskilyrðum.
![Þú þarft bara eitt bílastæða-app!](https://pages.parka.is/wp-content/uploads/2022/10/parking-garages-1.png)