PARKA FRÉTTIR

Sjálfvirk innheimta í Höfðatorgi

by | Jan 24, 2018

Rekstrarfélag bílahússins við Höfðatorg hefur samið við Computer Vision um uppsetningu sjálfvirks eftirlits og innheimtukerfis fyrir bílakjallarann. Höfðatorg er stærsta bílahús höfuðborgarinnar og verður með yfir 1400 bílastæði þegar byggingarferli er lokið. Ráðgert er að engin hlið verði við inn og útkeyrslur sem mun bæta flæði til muna.